Þakgarðurinn
Njóttu þess að slaka á upp í blómaþöktum þakgarðinum með hreint ólýsanlegt útsýni yfir borgina með Trinta dei Monti og spænsku tröppurnar nánast út af fyrir þig. Boðið er upp á einstakt morgunverðarhlaðborð á þakgarðinum sem hægt er að njóta jafn á veturnar sem og sumrin. Alltaf er hægt að koma og fá sér drykk yfir daginn eða kokteil áður en farið er út að borða.
















