Staðsett á hátískugötunni Via dei Condotti, the Inn at the Spanish Steps er tilvalið “heimili að heiman”. Ótal fornra menningarlegra perla má finna í göngufæri frá hótelinu.
Hér er einnig hjarta hátísku verslanna, í götunni má finna einstakar búðir á borð við Armani, Bulgari, Buccellati, Cartier, Ferragamo, Gucci, Hermes, Prada, Valentino, auk margra fleiri.
Hvort sem þú ert að leita eftir sérsaumuðum fatnaði frá klæðskera eða öðrum tískufatnaði þarftu ekki að leita langt. Hinar fjölmörgu hliðargötur hverfisins hafa upp á að bjóða afbragðs veitingastaði, notalegar gamaldags “trattorie” og flotta vínbari. Starfsfólk okkar er reiðubúið að útvega bílstjóra eða aðrar skoðunarferðir. Neðanjarðarlestarstöð er aðeins í mínútu göngufæri frá hótelinu. Fyrir þá sem hafa áhuga á morgunskokki er hinn sögulegi Villa Borghese garður staðsettur rétt ofan við Spænsku tröppurnar. Garðurinn er stór og fallegur og þess virði að sjá. Einfalt og þægilegt er að komast þangað hvort sem er með lyftu eða smá gangi. Fyrir þá sem hafa áhuga á að skella sér í ræktina er stór líkamsræktarstöð með sundlaug staðsett við neðanjarðarlestarstöðina á Spænsku tröppunum.
Hvernig er best að komast til okkar með lest
Hvernig er best að komast til okkar á bíl
Hvernig er best að komast til okkar frá flugvellinum
Hvernig er best að komast til okkar með lest
Hvernig er best að komast til okkar á bíl
Hvernig er best að komast til okkar frá flugvellinum

















