At spanish steps - member of small luxury hotels - hotels in rome - spanish steps - reservation - room accomodation - booking on line - last minute - spanishsteps - luxury hotel in rome - rome hotels discount - special offers - week end rates- special promotion - luxury boutique - luxury travel in rome - condotti street
The inn at the Spanishsteps small luxury hotel in rome
 
 
Ef þú ert komin til Rómar til að versla, eru óteljandi valmöguleikar í boði. Hvort sem það eru hátísku merki frá Ítölskum tískuiðnaði sem er að finna víða um borgina, stórar fatabúðir sem eru staðsett í útjaðri borgarinnar, eða hreinlega litlar sætar búðir með handgerðum hlutum. Frægasta verslunargatan er skipt í þrjá hluta og falla allar að Via del Corso.
Frá Spænsku tröppunum koma Via Condotti, Via Borgognona og Via Frattina. Frægasta gatan er þó Via Condotti sem í dag er ein af þekktustu verslunargötum heims yfirfull af hátískubúðum svo sem Bulgari sem opnaði árið 1905, Hermés, Ferragamo og Battistoni sem urðu hvað frægust fyrir að vera eitt af uppáhalds fötum prinsins af Windsor.
Á Via Borgognona eru svo aðrar frægar verslanir eins og Ferré, Fendi, Laura Biagiotti,
og Gai Mattiolo, sem er ungur Rómveskur fatahönnuður sem hefur nýlega slegið í gegn um allan heim. Að lokum á Via Frattina eru búðir á borð við Tiffany, Versace og Byblos.
Í miðborginni er einnig að finna aragrúa af gömlum upprunarlegum búðum sem enn handgera hlutina upp á gamla mátann. Sem dæmi á Via dei Sediari sem hefur verið fræg í margar aldir fyrir allar gerðir af stólum og öðrum húsgögnum. Via Santa Dorotea er tilvalin fyrir þá sem eru í leit af handmáluðu keramiki. Að lokum á Via dei Gigli d'Oro sem fræg er fyrir antík mósaík hluti. Aðrir antík búðir eru staðsettar á Via dei Coronari, Via Giulia, Via Margutta, Via del Babuino and Via del Pellegrino.

Njóttu Rómar
Komin til Rómar
call us free with skype Call me!