Staðsett á hátískugötunni Via dei Condotti, the Inn at the Spanish Steps er tilvalið "heimili að heiman". Ótal fornra menningarlegra perla má finna í göngufæri frá hótelinu.
Hér er einnig hjarta hátískuverslanna, í götunni má finna einstakar búðir á borð við Armani, Bulgari, Buccellati, Cartier, Ferragamo, Gucci, Hermes, Prada, Valentino, auk margra fleiri.
Hvort sem þú ert að leita eftir sérsaumuðum fatnaði frá klæðskera eða öðrum tískufatnaði þarftu ekki að leita langt. Hinar fjölmörgu hliðargötur hverfsins hafa upp á að bjóða afbragðs veitingastaði, notalegar gamaldags "trattorie" og flotta vínbari. Starfsfólkið er meira en tilbúið að útvega lúxussbifreiðar (limousine) og skoðunarferðir. Neðanjarðarlestarstöð er aðeins í mínútu göngufæri frá hótelinu. Fyrir þá sem hafa áhuga á morgunskokki er hinn sögulegi Villa Borghese garður staðsettur rétt ofan við Spænsku tröppurnar. Garðurinn er stór og fallegur og þess virði að sjá. Einfalt og þægilegt er að komast þangað
hvort sem er með lyftu eða smá gangi. Fyrir þá
sem
hafa áhuga á að skella sér í ræktina er stór líkamsræktarstöð með sundlaug staðsett við neðanjarðarlestarstöðina á Spænsku tröppunum.